7. október 2007

Þá er komin sunnudagur og það þýðir að enn ein skólavikan byrjar en þessi vika er skemmtilegri en allar hinar því að á föstudaginn er ég komin í vetrarfrí. Þá er ég líka að fara á Dirty south með Ásu og Ása og kannski líka Björgu, Auði og Diljá. Það kemur samt allt í ljós. Árni er síðan að hugsa um að taka sér frí á mánudaginn svo að við gætum farið norður að heimsækja Hjördísi systur hans. Það væri ekkert nema gaman, komast aðeins í burtu og anda.
Var í ekkert smá skemmtilegu afmæli í gær. Hjálmar og Axel eiga heiðurinn af því að hafa haldið það. Þeir ákváðu að leigja sal upp í Hafnafirði og hafa bollu í tveimur STÓRUM bölum einnig sem boðið var upp á bjór. Svaka mikið stuð.. smá fyllerí á liðinu en bara gaman. Ég og Árni stauluðumst síðan heim rétt fyrir kl. 2. Allir voru hressir og kátir og ekkert vesen.
Var síðan að vinna í dag og mamma mætti á svæðið og auðvitað fékk hún æðislega gott kaffi... allir hressir upp í vinnu og alltaf gaman að fara í vinnuna... allavegana er það þannig ennþá Tounge  Ég afgreiddi 2 þjóðþekkta einstaklingar sem að voru Unnur Birna og Ellý Ármans. Svaka gaman eða eitthvað.
Ekkert hefur annars verið á dröfinni. Er að fara í kaffi kennslu eða þjálfun á þriðjudaginn og ég hlakka ekkert smá mikið til, fæ loksins að læra að gera kaffi a la profesional.
Svo eftir að hafa sofið á þessari yndislegu vindsæng þá erum við Árni loksins að fara að fá rúmið okkar eða á morgun, vonandi Smile
Þangað til næst..

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband